Notkunarskilmálar
Síðast uppfært: 28. ágúst 2026
1. Um þjónustuna
Burtu er vefsíða og farsímaapp (iOS og Android) sem birtir skyndi- og síðustu stundu ferðatilboð frá ferðasölum og gerir notendum kleift að vista tilboð og setja upp ferðavaktir sem senda tilkynningu þegar tilboð passar við óskir þeirra.
2. Burtu er ekki ferðaskrifstofa
Burtu er hvorki ferðaskrifstofa, bókunarkerfi né greiðslumiðlun. Öll bókun, greiðsla og þjónusta vegna ferða fer fram hjá þeim ferðasala sem býður ferðina, á hans skilmálum og ábyrgð. Burtu er milliliður sem safnar og birtir tilboð — ekki samningsaðili í ferðakaupum þínum.
3. Notandaaðgangur
Til að vista tilboð eða setja upp ferðavakt þarftu að skrá þig inn með netfangi og einnota kóða. Þú ert ábyrg(ur) fyrir að halda aðgangi þínum öruggum. Notkun appsins og aðgangs er ókeypis og felur ekki í sér neina kaupskuldbindingu.
4. Eyðing aðgangs
Þú getur eytt aðgangi þínum og öllum tengdum gögnum (vistuðum tilboðum, ferðavöktum, tilkynningastillingum) hvenær sem er með því að hafa samband á hallo@burtu.is. Sjá einnig persónuverndarstefnu okkar.
5. Umsóknir fyrirtækja
Umsókn um samstarf eða snemmbúinn aðgang felur hvorki í sér loforð um samþykki né tiltekinn svartíma. Burtu áskilur sér rétt til að velja samstarfsaðila.
6. Sýnidæmi
Tilboð sem merkt eru „Sýnidæmi” í appinu eða á vefnum eru ekki raunveruleg tilboð og fela ekki í sér tilboð í skilningi samningaréttar.
7. Breytingar
Skilmálar þessir kunna að breytast. Verulegar breytingar verða tilkynntar í appinu eða á þessari síðu. Endanleg útgáfa er ávallt birt á þessari slóð.